Presley dró bát til Grindavíkurhafnar
Hætta skapaðist í nótt þegar vél bilaði í litlum fiskibáti sem staddur var skammt undan Reykjanesi og tók að reka í átt að grýttri ströndinni. Einn maður var um borð og Stjórnstöð Gæslunnar og vaktstöð siglinga kölluðu þegar út björgunarskip frá Grindavík og á nálæga fiskibáta. Fyrst tókst að koma taug yfir í annan fiskibát, en hún slitnaði ítrekað.
Kom þá fiskibáturinn Presley GK á vettvang og kom annari taug yfir í bátinn, sem hélt, en töluverður straumur var á svæðinu.
Presley lagði þegar af stað með bátinn í drætti áleiðis til Grindavíkur og fylgdi björgunarskipið bátunum til hafnar í Grindavík í nótt.
Vísir.is greinir frá.