Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Pokasjóður gefur 20 milljónir króna fyrir jólin
Stjórn Pokasjóðs og fulltrúar hjálparstarfsins. Frá vinstri Bjarni Finnsson formaður stjórnar, Finnur Árnason stjórnarmaður, Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, Anna Pétursdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og stjórnarme
Miðvikudagur 16. desember 2015 kl. 17:44

Pokasjóður gefur 20 milljónir króna fyrir jólin

Í dag afhenti stjórn Pokasjóðs Hjálparstarfi kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur 20 milljónir króna til að deila út til þurfandi fyrir jólin. Framlagi Pokasjóðs er skipt til helminga milli þessara hjálparstofnana og er í formi gjafakorta sem gilda í matvöruverslunum innan sjóðsins. Inneign á hverju korti er 10.000 kr. Gjafakortin nýtast til kaupa á öllum vörum til jólanna sem fást í verslunum innan Pokasjóðs, en þær eru um 160 talsins um allt land.

Framlag Pokasjóðs var afhent í Grensáskirkju. Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar og Anna Pétursdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur tóku á móti framlaginu úr hendi Bjarna Finssonar, formanns stjórnar Pokasjóðs.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Suðurnesjamenn eiga fulltrúa í stjórninni en það er Ómar Valdimarsson, forstjóri Samkaupa.