Plan C fyrir kjötsúpu og föstudagstónleika
Af óviðráðanlegum orsökum reyndist ekki hægt að bjóða upp á tónleika í gamla slippnum á föstudag eins og stefnt var að en skipuleggjendur Ljósanætur deyja þó ekki ráðalausir og fara viðburðirnir fram í íþróttahúsinu við Sunnubraut.
Tónleikarnir fara fram í B sal íþróttahússins við Sunnubraut 34. Þar verður gestum boðið upp á rjúkandi kjötsúpu að hætti Skólamatar og frábæra skemmtun á sviði.
Dagskráin er sannarlega ekki af verri endanum og meðal þeirra sem koma fram eru Sigga og Grétar úr Stjórninni og sjálf diskódívan Páll Óskar auk flottu heimabandanna Midnight Librarian, Demo og Sissu sigurvegara úr söngkeppni framhaldsskólanna og hæfileikakeppni Ljósanætur.
Dagskrá á sviði stendur frá kl. 18:00 til 21:00. Boðið verður upp á kjötsúpu frá kl. 18:00 til 20:00.