Píratar halda lokað prófkjör í Suðurkjördæmi
Píratar halda lokað prófkjör í Suðurkjördæmi fyrir næstu Alþingiskosningar. Þegar hefur verið opnað fyrir framboð. Kjörgengir eru allir skráðir Píratar sem uppfylla skilyrði til Alþingiskosninga. Kosningarétt í prófkjörinu hafa þeir sem eru skráðir Píratar samkvæmt lögum Pírata eða þeir Píratar sem skráðir hafa verið í flokkinn 30 dögum áður en kosningu lýkur. Þá þarf að hafa lögheimili í kjördæminu til að hafa kosningarétt. Kosning í rafrænu kosningakerfi Pírata mun svo standa frá 2. til 12. ágúst.