Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Penninn ehf. með lægsta tilboðið í námsgögn
Frá undirritun samningsins, f.v. Jóhann Gunnarsson sölustjóri Pennans, Helgi Arnarson sviðsstjóri Fræðslusviðs Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Ingimar Jónsson forstjóri Pennans og Aníta Gunnlaugsdóttir verslunarstjóri P
Þriðjudagur 15. maí 2018 kl. 12:26

Penninn ehf. með lægsta tilboðið í námsgögn

Penninn ehf. átti lægsta tilboðið í sameiginlegu örútboði Reykjanesbæjar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna kaupa á námsgögnum fyrir grunnskólabörn. Samningur milli Reykjanesbæjar og Pennans var undirritaður í síðustu viku og mun hann gilda skólaárið 2018-2019.

„Sameiginlegur ávinningur þessara tveggja sveitarfélaga var mjög góður í þessu örútboði eða 64,2%. Almenn ánægja er í báðum sveitarfélögunum. Ávinningur RNB eins og sér var 64,4% eða kr. 9.506.876.,“ segir á heimasíðu Reykjanesbæjar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Alls bárust þrjú tilboð og voru þau öll undir kostnaðaráætlun sveitarfélaganna.  Penninn ehf. bauð lægsta heildartilboðsverðið og eftir mat á vöruframboði var tilboði þeirra tekið. Samningurinn er með framlengingarheimild um tvisvar sinnum eitt ár.