Peningaverðlaun til þeirra sem ljúka námi
Nýjar reglur bæjarstjórnar Voga.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga fagnar nýjum og breyttum reglum um Mennta-, menningar- og afreksmannasjóð sveitarfélagsins, þar sem helstu breytingar eru að auk þess að veita peningaviðurkenningar ungmennum sem klára hálft framhaldsskólanám verða nú einnig veittar peningaviðurkenningar þeim ungmennum í Vogum sem ljúka framhaldsskólanámi.
Áfram verða peningaverðlaun veitt þremur efstu nemendum Stóru-Vogaskóla við útskrift auk þess sem veittar verða viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í menningum og listum.
Þá hefur bæjarstjórn samþykkt ákvörðun bæjarráðs að leggja til að afrekssjóður íþróttamanna og menntasjóður verði sameinaður í einn sjóð, Mennta-, menningar- og afrekssjóð Sveitarfélagsins Voga.