Par handtekið með hass og amfetamín í fórum sínum
Lögreglan í Keflavík stöðvaði bifreið á tíunda tímanum í gærkvöld vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leit á pari sem var í bílnum fundust 2 grömm af meintu hassi og 1 gramm af amfetamíni.
Leitað var af fíkniefnum á dvalarstað parsins en þar fundust 2 grömm af meintu hassi og ein meint hassblanda, lagt var hald á efnin og telst málið upplýst. Parinu var sleppt að skýrslutöku lokinni.