Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

Óvissustig Almannavarna vegna veðurs sem nær yfir allt landið
Mánudagur 6. febrúar 2023 kl. 17:57

Óvissustig Almannavarna vegna veðurs sem nær yfir allt landið

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á öllu landinu lýsa yfir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs sem framundan er.

Fyrsta appelsínugula viðvörun Veðurstofunnar tekur gildi kl. 6:00 í fyrramálið. Góðu fréttirnar eru að veðrið fer hratt yfir og síðasta appelsínugula viðvörunin rennur úr gildi um hádegisbilið.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Almannavarnir biðla til almennings um að ganga frá lausamunum til að fyrirbyggja foktjón. Einnig er mikilvægt að byggingarfyrirtæki hugi að sínum svæðum og geri viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir og draga úr tjóni. Miklar líkur eru á að veðrið muni hafa áhrif á samgöngur og eru vegfarendur beðnir um að vera ekki á ferðinni að óþörfu á þeim svæðum þar sem veðrið er verst hverju sinni. Fólki bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.

Samráðsfundur Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra var haldinn klukkan 16:00 í dag þar sem farið var yfir komandi veður, möguleg áhrif og viðbragð við þeim. Ákveðið hefur verið að virkja Samhæfingarstöð Almannavarna klukkan 5:00 í fyrramálið.

Inn á umferdin.is er hægt að fylgjast með rauntímaupplýsingum um færð á vegum og inn á vedur.is er eins og alltaf hægt að fylgjast með veðrinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn