Óveður í aðsigi
Veðurstofan hefur spáð slæmu veðri víða um land næstu daga. Seinnipartinn í dag er útlit fyrir vonskuveður um landið norðanvert með vindhraða á bilinu 13-20 m/s. Einnig má búast við hvössum vindi sunnan Vatnajökuls.
Nokkur ofankoma fylgir veðrinu og því getur færð spillst, ekki síst á heiðum og fjallvegum.
Af þessu tilefni vill Slysavarnafélagið Landsbjörg brýna fyrir fólki að gera ráðstafanir svo hægt sé að koma í veg fyrir tjón og óþægindi er vilja fylgja slíku veðri.
Þegar sterkur vindur gengur yfir skapast mesta hættan þegar lausir hlutir fjúka. Því er mikilvægt gæta þess að festa þá vel og tryggilega eða koma þeim fyrir innandyra.
Við flest íbúðarhús er um að ræða hluti í garði og á svölum, svo sem garðhúsgögn, grill, hitara og trampólín. Fari þessir hlutir af stað er hætta á að þeir lendi á rúðum og brjóti þær eða skemmi bifreiðar.
Fullvissið ykkur um að öllum gluggum og dyrum sé vel lokað. Brotni rúða skal heimilisfólk yfirgefa herbergið, loka dyrum og hringja eftir aðstoð björgunarsveita.
Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og annað. Húsbyggjendur ættu að sýna sérstaka varkárni í þeim efnum.
Tryggið að hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og dráttarkerrur séu í skjóli við ríkjandi vindátt og að kyrfilega sé gengið frá þeim.
Verið ekki á ferðinni á heiðum og fjallvegum nema á vel búnum bifreiðum og virðið tilmæli um ófærð og lokanir.
Séu varúðarráðstafanir gerðar aukast líkur á að veðrið gangi yfir án þess að skapa teljandi vandkvæði.
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða til taks, eins og ávallt, á meðan veðrið gengur yfir. Hafa þær yfir að ráða sérstökum “óveðursbúnaði” sem nýtist í slíkum aðstæðum. Þurfi fólk á aðstoð þeirra að halda má hringja í Neyðarlínuna – 112 eftir hjálp.