Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Óveður í aðsigi
Föstudagur 17. desember 2010 kl. 11:26

Óveður í aðsigi

Veðurstofan hefur spáð stormi á landinu í dag. Af því tilefni vill Slysavarnafélagið Landsbjörg brýna fyrir fólki að gera ráðstafanir svo hægt sé að koma í veg fyrir tjón og óþægindi er vilja fylgja slíku veðri.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða í viðbragðsstöðu meðan veðrið gengur yfir. Þurfi fólk á aðstoð þeirra að halda má hringja í Neyðarlínuna – 112 eftir hjálp.

Þegar sterkur vindur gengur yfir skapast mesta hættan þegar lausir hlutir fjúka. Því er mikilvægt gæta þess að festa þá vel og tryggilega eða koma þeim fyrir innandyra.

Við flest íbúðarhús er um að ræða hluti í garði og á svölum, svo sem garðhúsgögn, grill, hitara og trampólín. Fari þessir hlutir af stað er hætta á að þeir lendi á rúðum og brjóti þær eða skemmi bifreiðar.

Fullvissið ykkur öllum gluggum og dyrum sé vel lokað. Brotni rúða skal heimilisfólk yfirgefa herbergið, loka dyrum og hringja eftir aðstoð björgunarsveita í síma Neyðarlínunnar -112.

Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og annað. Húsbyggendur ættu að sýna sérstaka varkárni í þeim efnum.

Tryggið að hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og dráttarkerrur séu í skjóli við ríkjandi vindátt og að kyrfilega sé gengið frá þeim.

Séu varúðarráðstafanir gerðar aukast líkur á að veðrið fari yfir landið án þess að skapa teljandi vandkvæði.

Mynd: Belgingur.is