Óveðrið að skella á
Óveðrið sem spáð hefur verið er að skella á þessa stundina. Síðustu mínútur hefur hvesst þó nokkuð í Reykjanesbæ.
Á Reykjanesbraut eru austan 16 m/s og hiti við frostmark á veðurstöð á Strandarheiði. Þar er jafnframt vefmyndavél þar sem sjá má aðstæður á brautinni.
Myndin hér að ofan er tekin til vesturs úr vefmyndavélinni á Strandarheiði.