Ótrúlegar andstæður
Það geta verið miklar andstæður í náttúrunni. Þessar tvær meðfylgjandi myndir voru teknar í dag, föstudag. Önnur sýnir dulúðlega frostþoku í umhverfi Keflavíkurflugvallar þar sem gamli vatnstankurinn stóð upp úr þokuslæðunni. Ef horft var í hina áttina mátti sjá yfir Njarðvík þar sem sólin baðaði húsin. Í fjarska má sjá til Reykjavíkur og “ef myndin prentast vel” þá má sjá að gulbrúnt mengunarský liggur yfir borginni. Hvort það er af útblæstri bifreiða eða af pólitískum toga eftir mótmælaöldu síðustu daga, skal ósagt látið...


Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson