Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Óþægindi vonandi úr sögunni í Helguvík
Mánudagur 21. nóvember 2016 kl. 06:00

Óþægindi vonandi úr sögunni í Helguvík

- bæjarstjóri átti fund með forstjóra United Silicon vegna lyktarmengunar

„Þetta er flókið ferli sem tekur nokkra daga en þegar því lýkur, vonandi strax eftir helgi, eiga þau óþægindi sem við höfum orðið vör við að vera úr sögunni,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar í pistli á Facebook eftir fund 19. nóv. sl. með forstjóra United Silicon kísilverksmiðjunnar í Helguvík, vegna lyktarmengunar frá henni að undanförnu.

Í pistli bæjarstjóra kom þetta m.a. fram:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Staðan
Það helsta sem kom fram á fundinum var að USi er að hita upp þann eina ofn sem búið er að setja upp í kísilverksmiðjunni og er það gert með því að brenna viðarspæni inni í ofninum. Ólyktin sem margir íbúar hafa fundið kemur þaðan. Við þetta hækkar hitinn í ofninum smátt og smátt en er enn ekki kominn í það hitastig ennþá sem stefnt er að. Þar af leiðir að bruninn í ofninum ekki orðinn eins hreinn og hann mun verða. Með hærri hita verður bruninn hreinni og betri og lyktarmengunin minni að þeirra sögn. Samhliða þessu er smátt og smátt verið að hleypa meira rafmagni á ofninn með það að markmiði að ná upp fullum hita og krafti. Þetta er flókið ferli sem tekur nokkra daga en þegar því lýkur, vonandi strax eftir helgi, eiga þau óþægindi sem við höfum orðið vör við að vera úr sögunni.

Betri upplýsingar
Við ræddum einnig um mikilvægi þess að þeir veiti góðar upplýsingar á mannamáli svo bæjarbúar skilji það sem er að gerast. Við báðum fulltrúa Orkurannskókna Keilis um að bæta framsetningu upplýsinga og gagna á www.andvari.is þannig að við gætum betur skilið hvað þær mælingar eru að segja okkur. Það kom einnig fram að þeir toppar sem sjá má á línuritum á www.andvari.is séu vegna prófana og stillinga á mælitækjum, sem fara þannig fram að efnum og gastegundum er úðað á mælitækin til að ganga úr skugga um að þau virki og séu rétt stillt. Við báðum um að slikar prófanir og stillingar á tækjum yrður framvegis kynntar fyrirfram þannig að fólk sem vildi fylgjast með gæti vitað af þeim áður en þær færu fram.

Einnig kom fram á fundinum að erfitt væri að segja til um hvað af algengustu lofttegundunum sem verið væri að mæla kæmu frá kísilverksmiðjunni, hvað kæmi frá Keflavíkurflugvelli og hvað kæmi frá bílaumferð. Í Helguvík, rétt hjá einum mælinum, hafa bílaleigur verið að leggja tugum eða hundruðum bíla til vetursetu á síðustu dögum. Útblástur úr þeim gæti haft áhrif mælingarnar á sama hátt og mælingar sums staðar í Reykjavík, s.s. á Grensásvegi og Miklubraut, sýndu stundum mikla loftmengun í borginni.