Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Óskað eftir ábendingum um fallegt umhverfi
Gjörningur í nágrenni við Ráðhús Reykjanesbæjar.
Þriðjudagur 7. júlí 2015 kl. 12:00

Óskað eftir ábendingum um fallegt umhverfi

Vilja umhverfisvitundina út fyrir lóðamörkin

Það hefur viðrað vel til garðverka á undanförnum vikum og margir íbúar bæjarins hafa tekið til hendinni heimavið. En það er engin ástæða til að stoppa þar heldur upplagt að líta í kringum sig og láta umhverfisvitundina ná aðeins lengra út í sitt nánasta umhverfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ. 

Á næstu vikum mun Berglind Ásgeirsdóttir, garðyrkjufræðingur Reykjanesbæjar, taka á móti ábendingum frá íbúum um nágranna og fyrirtæki sem eru að gera góða hluti í umhverfismálum. Það er hagur allra íbúa bæjarins að umhverfið sé snyrtilegt og að umhverfisvitundin nái út fyrir lóðamörkin.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Vinnuskóli Reykjanesbæjar og Hverfisvinir eru þeir aðilar á vegum Reykjanesbæjar sem sinna umhverfismálum, gróðursetningu, snyrtingu og hreinsun. Þrátt fyrir góðan vilja ná þessir aðilar aldrei að sinna öllum Reykjanesbæ og þá er íbúanna að hjálpa til.

Í sumarlok mun Umhverfissvið veita umhverfisviðurkenningar til íbúa og fyrirtækja. Óskað er eftir ábendingum frá íbúum bæjarins um fallega garða, fallega endurbyggingu á gömlum húsum og lóðum hjá einstaklingum og fyrirtækjum.

Hægt er að senda ábendingar á netfangið[email protected] eða hringja í Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar í síma 420-3200, milli kl. 08:00 og 16:00.

Verðlaunaafhending fer fram við upphaf Ljósanæturhátíðar svo það er kjörið að nota tækifærið og koma bænum í sitt fínasta púss fyrir hátíðina. Munum að þetta er bærinn okkar og ábyrgðin okkar.

Góð umhverfisvitund felst m.a. í því að ganga vel um og setja úrgangi í viðeigandi ílát. Þetta vita leikskólabörnin á Tjarnarseli og hvetja bæjarbúa til að ganga vel um bæinn sinn með þessu skilti framan við Ráðhús Reykjanesbæjar.