Fréttir

Óska eftir yfirliti yfir óbyggðar atvinnulóðir
Föstudagur 6. mars 2026 kl. 09:35

Óska eftir yfirliti yfir óbyggðar atvinnulóðir

Sjálfstæðisflokkurinn og Umbót vilja fá skýrt yfirlit yfir allar óbyggðar atvinnulóðir í Reykjanesbæ sem hafa verið í úthlutun lengur en í tvö ár, auk lóða sem hafa ekki verið úthlutað eða þar sem gjöld hafa ekki verið greidd.

Þetta kemur fram í bókun sem Guðbergur Reynisson (D) lagði fram á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 3. febrúar 2026, þegar fundargerð atvinnu- og hafnarráðs frá 22. janúar var til umræðu.  Bókunina undirrituðu Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson og Birgitta Rún Birgisdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Margrét Þórarinsdóttir fyrir Umbót.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar