Bygg
Bygg

Fréttir

Óska eftir fresti út september
Fyrri frestur rennur út á sunnudag.
Föstudagur 8. júlí 2016 kl. 11:42

Óska eftir fresti út september

- Viðræður við kröfuhafa þokast í rétta átt

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í gær að fela Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra, að sækja um áframhaldandi frest til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga á að bænum verði skipuð fjárhaldsstjórn. Fyrri frestur, sem veittur var 8. júní, rennur út næsta sunnudag, þann 10. júlí.

Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ eiga enn í viðræðum við kröfuhafa sína um niðurfellingar skulda og segir Kjartan Már þær þokast í rétta átt. „Ég sótti um frest til loka september í morgun og er bjartsýnn um að Eftirlitsnefndin veiti okkur hann,“ segir bæjarstjórinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn