Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Óska eftir byggingaleyfi vegna fjölbýlishúss í Grindavík
Vöntun er á minni íbúðum í Grindavík.
Miðvikudagur 6. júlí 2016 kl. 13:00

Óska eftir byggingaleyfi vegna fjölbýlishúss í Grindavík

Verktakafyrirtækið Grindin í Grindavík hefur óskað eftir því við skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar að fá byggingarleyfi vegna fjölbýlishúss við Stamphólsveg 5.

Skipulagsnefnd hefur lagt til við bæjarstjórn að byggingaráfomin verði samþykkt og byggingarleyfi gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist. Bæjarráð samþykkti tillögu skipulagsnefndar samhljóða á fundi sínum í gær.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Vöntun hefur verið á minni íbúðum í Grindavík og í frétt Víkurfrétta 18. júní síðastliðinn var haft eftir Róberti Ragnarssyni, bæjarstjóra Grindavíkur, að þar vanti 70 til 100 fermetra íbúðir, bæði fyrir yngra fólkið og það eldra, jafnt til leigu og sölu.