Ósáttur við hraðakstur á Tjarnabakka
Íbúi við Tjarnabakka í Innri Njarðvík er ósáttur við hraðakstur í götunni sem hann segir vera langt yfir leyfilegum mörkum. Hann segir algengt að bílar bruni um götuna á allt að 70 km. hraða en hraðatakmörk eru í götunni en þar er 30 km. hámarkshraði.
Íbúinn segir mikið af börnum eigi heima við götuna og mörg þeirra séu á þeim aldri að þau átti sig ekki á hættunni sem fylgir hraðakstri. Hvatti íbúinn til þess að ökumenn virði hraðatakmörk og vildi koma því til bæjaryfirvalda að gera þurfi ráðstafanir til að draga úr hraða. Nefndi hann þar svokallaða höggorma sem setja mætti í götuna.
Meðfylgjandi myndir eru frá Tjarnabakka í Reykjanesbæ. VF-myndir: Hilmar Bragi