Öryggisráðstafanir ráðgerðar á hættulegum gatnamótum

Viðar Már Aðalsteinsson, forstöðumaður Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar, segir að þeir viti af hættunni sem þar er og ráðgert sé að grípa til viðeigandi ráðstafana.
„Við erum með tillögu fyrir aðgerðir til að draga úr hraða á Aðalgötu á fjárhagáætlun fyrir næsta ár og ættum að geta farið í framkvæmdir eftir áramót. Í framtíðinni er svo gert ráð fyrir hringtorgi á gatnamótunum.“
Þá er einnig verið að ræða við lóðareigendur um að auka útsýni með því að minnka limgerðið og girðinguna, og segir Viðar að það reynt verði að fá botn í það mál sem allra fyrst.
Önnur gatnamót sem hafa vakið umtal eru þar sem Aðalgata og Hafnargata mætast í litlu hringtorgi. Menn hefur greint á um það hvort um sé að ræða alvöru hringtorg þar sem engar merkingar eru áður en ekið er inn í það, hvorki biðskylda né hringtorgsmerki.
Viðar segir að vissulega sé um hringtorg að ræða og gildi allar þær reglur sem eiga við um slíkt. „Við höfum farið okkur hægt í merkingum á Hafnargötunni til að spilla ekki heildarútliti eða stíl hennar en nú erum við að fara að setja upp merkingar við torgið á næstu dögum.“