Miðvikudagur 12. september 2001 kl. 14:55
Öryggisgæsla enn í hámarki á Keflavíkurflugvelli

Öryggisgæsla er enn í hámarki á Keflavíkurflugvelli. Öryggisgæsla var hert innan flugstöðvarinnar og fylgst nánar með aðgengi starfsfólks inn í stöðina og á flutningssvæði vallarins. Ómar Ingarsson staðgengill flugvallarstjóra sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins að flug til og frá Evrópu gengi snurðulaust fyir sig, ekki síst eftir að gengið var úr skugga um að engin sprengja var í flugstöðinni, en tilkynnt var um sprengjuhótun í gærkvöldi. "Flug hefur gengið vel og engar tafir hafa orðið," sagði Ómar og benti á að beðið væri eftir því að Bandaríkjamenn opnuðu flugstjórnarsvæði sitt á ný, en því var lokað í gær. "Ég hef engar upplýsingar um slíkt og við bíðum átekta," sagði Ómar.
Friðþór Eydal upplýsingafulltrúi varnarliðsins sagði að það væri viðbúnaður af ýmsum toga á varnarsvæðinu, en það væri misskilningur sem fram hefði komið að allir varnarliðsmenn væru undir vopnum. Þá sagði hann að aðeins þeir væru við störf sem brýna nauðsyn bæri til, aðrir væru heima og biðu fyrirmæla um það hvenær þeir gætu hafið störf á ný.