Öryggi göngufólks aukið: Skipsstígur og Árnastígur stikaðir

Stikurnar eru appelsínu gular að lit og eru með hlaupandi tölustöfum frá suðri til norður. Hver stika er með stöfum gönguleiðarinnar og staðsetning hennar tekin með GPS punkti.
Allar stikurnar á göngustígunum verða því inn í GPS kerfi miðað við númer og verða hjálparsveitir og Neyðarlínan með GPS punktana. Öryggi þeirra sem ganga eftir þessum göngustígum verður því mikið en farsímasamband er um stærstan hluta þessa svæðis. Ef eitthvað kemur fyrir á því að vera hægt að hringja í Neyðarlínuna og með því að segja hvaða upphafsstafir og númer er á næstu stiku er hægt að sjá nákvæmlega hvert senda þarf hjálp ef hennar er þörf.
Það er fyrirtækið Girðir sem sér um að stika fyrstu tvo göngustígana sem eru Skipsstígur og Árnastígur sem liggja frá Grindavík til Njarðvíkur og er þessi leið 28 km löng.
Að sögn Kristjáns Pálssonar formanns Ferðamálasamtaka Suðurnesja mun stikun þessara tveggja stíga ljúka í þessari viku ef ekkert óvænt kemur fyrir. Einnig er unnið að uppsetningu stórra gönguleiðakorta sem sett verða upp á skilti í Reykjanesbæ og í Grindavík á næstunni. Gönguleiðaskilti verða sett upp víðar á Reykjanesinu næsta sumar. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Pokasjóður hafa styrkt þetta verkefni.