Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

„Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum“ kynnt fyrir Suðurnesjafólki
Fimmtudagur 12. október 2023 kl. 08:33

„Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum“ kynnt fyrir Suðurnesjafólki

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, kynnti í síðustu viku útspilið Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum. Kristrún mætti m.a. í Krossmóa í Reykjanesbæ ásamt fólki úr framvarðasveit Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ. Í riti sem þau dreifðu til fólks í anddyri verslunarmiðstöðvarinnar er afrakstur af metnaðarfullu málefnastarfi undanfarna sex mánuði þar sem öll athygli flokksins hefur beinst að heilbrigðis- og öldrunarmálum – samkvæmt nýrri nálgun sem lögð var upp á flokksstjórnarfundi í Hafnarfirði í mars síðastliðnum kynnt.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í útspilinu eru sett fram fimm þjóðarmarkmið og örugg skref í rétta átt.

Fimm þjóðarmarkmið:

  • Fólk fái fastan heimilislækni og heimilisteymi
  • Þjóðarátak í umönnun eldra fólks
  • Öruggt aðgengi um land allt
  • Meiri tími með sjúklingnum
  • Tökum ábyrgð á heilbrigðiskerfinu í heild

„Þetta er tveggja kjörtímabila vegferð – fimm þjóðarmarkmið og örugg skref í rétta átt. Áherslurnar eru sóttar til almennings – á hátt í 40 opnum fundum um land allt og svo höfum við átt annað eins af fundum á vinnustöðum, með fólkinu af gólfinu og öðrum sérfræðingum um heilbrigðismál. Þetta veitir okkur styrk og fullvissu,“ sagði Kristrún á fjölmiðlafundi við kynningu á útspilinu.

„Útspilið endurspeglar raunhæfar væntingar fólksins í landinu og breytingar sem eru gerlegar á tveimur kjörtímabilum. Það er hægt að gera þetta – með pólitískri forystu og samstöðu þjóðar um fjármögnun. Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum verða höfuðáhersla Samfylkingar í næstu kosningum til Alþingis.“