Örn og Íris Edda fara á ÓL

Það eru þau Örn Arnarson og Íris Edda Heimisdóttir, en þau keppa aðeins í einni grein hvort. Íris Edda í 100m bringusundi og Örn í 50m skriðsundi.
Athygli vekur að Örn, sem var búinn að synda undir lágmarkstíma á fjölmörgum greinum, keppir aðeins í einni grein. Þar er vegna þess að hann hefur átt við erfið meiðsli að stríða síðan í janúar.
„Þetta er auðvitað súrt en það þýðir ekkert að fara í fýlu út af svona. Maður verður bara að vinna út frá þessu,“ sagði Örn í samtali við Víkurfréttir í dag. „Við gátum valið úr mörgum greinum, en ákváðum þessa þar sem þetta er eina greinin sem ég sé fram á að ég geti bætt mig. Ég kem sáttur heim ef ég verð við minn besta tíma eða undir honum.“