Orlofshúsin eru að losna fyrir Grindvíkinga
„Allar tilfinningar eiga rétt á sér,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur hjá Rauða krossinum og hópstjóri samráðshópa áfallamála á landsvísu en hún er einnig starfandi í þjónustumiðstöðinni fyrir íbúa Grindavíkur. Hún var ein þriggja frummælenda á fundi Almannavarna Ríkislögreglustjóra sem fram fór klukkan ellefu í morgun. Hinir sem mæltu voru Víðir Reynisson, yfirlögreglustjóri Almannavarna og Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjunum.
Víðir fór yfir stöðu húsnæðismála sem þokast í rétta átt en enn eru margar fjölskyldur sem eru í óvissu með sín íbúðarmál. Víðir sagði að haft hafi verið samband við mörg stéttarfélög sem hafa gefið eftir sumarbústaði sína víðsvegar um landið og eins hafa félagar stéttarfélaganna samþykkt að draga umsóknir sínar um veru í bústöðunum til baka. Það er framkvæmdasýsla ríkisins sem heldur utan um húsnæðismál Grindvíkinga sem eins og áður segir, þokast í rétta átt. Víðir minnti alla á að fara inn á ísland.is og skrá sig þar.
Úlfar fór yfir verkefnin undanfarna daga sem hafa snúist um verðmætabjörgun. 110 aðilar gátu farið inn á sín heimili í gær og mun þessi vinna halda áfram næstu daga. Úlfar var spurður af fréttamanni, hvort stæði til að létta á þeim takmörkunum sem hafa verið í gangi og svaraði Úlfar því að ef hættustigið minnkar, muni það gerast og eins svaraði hann spurningu fréttamanns varðandi kæru Blaðamannafélags Íslands. Úlfar telur gott samstarf hafi verið á milli aðila en einn úr röðum ónefnds fjölmiðils hafi skemmt fyrir sem olli Grindvíkingum miklu hugarangri en til stæði að létta á þeim takmörkunum strax í dag.
Elfa talaði til íbúa Grindavíkur. „Það er eðlilegt að fólk finni fyrir alls kyns tilfinningum og þær eiga allar rétt á sér. Það er óþægilegt að finna fyrir þessum vanmætti og mikilvægt að fólk hlúi að hvort öðru. Það er mikilvægt að fólk tali um líðan sína og það er eðlilegt að fólki líði ekki vel. Sumir hafa lýst líðan sinni eins og þeir séu örmagna og það er eðlilegt undir slíkum kringumstæðum. Þá er svo gott að geta komið til okkar í þjónustumiðstöðinni. Við reynum að hjálpa fólki að skipta verkefnunun í litla búta og það er mikilvægt að fólk sýni sjálfu sér og öðrum þolinmæði. Börnin upplifa hlutina á annan hátt en fullorðnir og það er mikilvægt að halda þeim ekki fyrir utan hlutina heldur nálgast þau með upplýsingar sem samræmist þeirra aldri. Ég fagna því að börnin eru byrjuð að mæta í skóla, það er hluti af þeirri sálræna stuðningi, að geta hitta skólafélaga sína. Það er mikil seigla í grindvísku samfélagi, það er mikill samtakamáttur og samkennd og ég hvet alla til að nýta þá afþreyingu sem er í boði, við þurfum að geta brotið daginn upp,“ sagði Elfa.