Orkuverðinu haldið leyndu
Stjórnarformaður Hitaveitu Suðurnesja vill ekki gefa það upp opinberlega á hvaða verði HS mun selja raforku til Norðuráls vegna hugsanlegs álvers í Helguvík. Aðilar sendu frá sér tilkynningu nú í vikunni þar sem skýrt var frá samningi þeirra vegna orkusölu til álversins. Samkvæmt honum mun HS útvega Norðuráli raforku fyrir álverið í Helguvík, þar á meðal allt að 150 MW fyrir fyrsta áfanga álversins sem miðast við 150.000 tonna ársframleiðslu. Í tilkynningunni er hins vegar ekkert minnst á orkuverðið.
„Að kröfu viðsemjenda okkar eru samningar og verðið trúnaðarmál auk þess sem það er reyndar ekki einfalt að gefa það upp því samkvæmt samningum tekur það nánast daglegum breytingum í samræmi við álverð og gengi USD,“ segir Árni Sigfússon, stjórnarformaður HS og bæjarstjóri í Reykjanesbæ, í svari við fyrirspurn VF um orkuverðið.
„Við getum þó sagt að verðið sem við fengum 2006 frá Norðuráli fyrir raforku frá Reykjanesvirkjun var að meðaltali rúmlega 31 US mills/kWst og nokkru hærra að meðaltali fyrstu 3 mánuði ársins 2007 (flutningur innifalinn). Verðið til álvers í Helguvík er á bilinu 1,2 – 7,1% hærra eftir markaðsaðstæðum hverju sinni,“ segir Árni ennfremur.
Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræðingur og oddviti Íslandshreyfingarinnar í Suðurkjördæmi, segir að á meðan orkuverði er haldið leyndu bendi það til þess að almenningur sé að niðurgreiða orkuna. „Af hverju er orkuverð til stóriðju á Íslandi leyndarmál? Hver er arðsemi auðlinda í þjóðareign? Er orkuverði haldið leyndu af því að það er algerlega óviðunandi og niðurgreitt af almenning og íslenskum iðnaði?“ spyr Ásta í grein sem hún skrifar í Víkurfréttir í dag.
„Við verðum að spyrja okkur hvort það sé ásættanlegt að binda 80-90% af orku landsins við heimsmarkaðsverð á áli. Hvað ef sá markaður hrynur með tilkomu nýrra og betri aðferða við koltrefjaframleiðslu? Hvar stöndum við þá, skuldug upp fyrir haus vegna furðulegrar ráðstjórnarræðishyggju?“ spyr Ásta í greininni.
Mynd: Fulltrúar HS og Norðuráls skrifuðu undir orkusamningana í vikunni. Orkuverðið er hins vegar leyndarmál.