Orkuver 6 tekur á sig mynd
Framkvæmdir Hitaveitu Suðurnesja við Orkuver 6 í Svartsengi ganga vel en eins og vegfarendur um svæðið hafa tekið eftir eru komnar upp nýjar byggingar á athafnasvæðinu.
Gert er ráð fyrir að að orkuverið verði ræst fyrir árslok en framkvæmdir hófust fyrir ári síðan. Verið er að loka byggingum, stöðvarspennirinn er kominn til landsins ásamt flestu öðru efni og tækjum og sjálf túrbínan er rétt ókomin.
Í fjárhagsáætlun Hitaveitu Suðurnesja fyrir yfirstandandi rekstrarár er gert ráð fyrir 2,1 milljarðs króna fjárfestingu vegna Orkuvers 6. Heildarfjárfesting nemur um 3,3 milljörðum króna. Alls verður virkjunin 30 MW og hefur helmingur orkunnar verið seldur Norðuráli með 5 ára samningi. Hinn helmingurinn verður nýttur á almennum markaði.
VF-mynd/elg: Orkuver 6 í Svartsengi.