Bygg
Bygg

Fréttir

Orkuveitan verður að kaupa hlut Hafnarfjarðar í HS
Miðvikudagur 18. mars 2009 kl. 11:21

Orkuveitan verður að kaupa hlut Hafnarfjarðar í HS


Orkuveita Reykjavíkur verður kaupa 14,65% hlut Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. Orkuveitan þarf að greiða Hafnarfjarðarbæ ríflega 7,6 milljarða fyrir eignarhlutinn en bæjarfélagið stefndi OR vegna vanefnda á gerðum samningi um kaup OR á áðurnefndum hlut bæjarins í HS. OR á nú þegar tæplega 16,6% hlut í HS.

Samningurinn var gerður í júlí 2007. Orkuveitan vildi að hann gengi til baka eftir úrskurð samkeppnisyfirvalda þess efnis að hann bryti í bága við lög. Ekki liggur fyrir hvort OR muni áfrýja dóminum til Hæstaréttar, þó líklegt megi telja.

Geysir Green Energy á 32% hlut í HS veitum og Reykjanesbær rúm 34,7%.

Bílakjarninn
Bílakjarninn