Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

ORF hlýtur Nýsköpunarverðlaunin
Fimmtudagur 28. febrúar 2008 kl. 14:23

ORF hlýtur Nýsköpunarverðlaunin

ORF Líftækni, sem m.a. hefur starfsstöð í Grindavík hlaut í morgun Nýsköpunarverðlaunin. Að þeim standa Rannís, Rannsóknamiðstöð Íslands, og Útflutningsráð.

Félagið vinnur að sameindaræktun og eru afurðirnar fengnar úr byggplöntum sem eru ræktaðar í gróðurhúsi fyrirtækisins við Grindavík. Afurðirnar, sérvirk prótein, eru notaðar við ýmsar rannsóknir og nú í auknum mæli í framleiðslu snyrtivara með heilbrigðisáherslur. ORF hefur skipað sér í fremstu röð í heiminum með sína framleiðslu en sérstaða fyrirtækisis liggur m.a. í því að þeir eru þeir einu sem notast ekki við bakteríur og spendýrafumur í framleiðslunni.

Í frétt Stöðvar 2 í hádeginu segir m.a.:

Í greinargerð með ákvörðuninni fyrir að veita ORF Líftækni verðlaunin segir að fyrirtækið hafi lagt áherslu á að hanna framleiðslukerfi sem sé öruggara en hefðbundin kerfi og ódýrara í rekstri. ORF Líftækni einbeitir sér að framleiðslu og sölu á svokölluðum vaxtarþáttum, sem er flokkur próteina sem er í hundraðavís í mannslíkamanum.

Vaxtarþættir eru notaðir í stofnfrumurannsóknum, krabbameinsrannsóknum, vefjaverkfræði og rannsóknum í ónæmisfræðum. Auk þess sem margir þeirra eru notaðir í lyf og lyfjaþróun og nýverið er farið að reyna þá í snyrtivörum.

VF-mynd/ELG
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024