Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Orðaval til þess fallið að skapa misskilning og úlfúð
Föstudagur 17. janúar 2014 kl. 10:43

Orðaval til þess fallið að skapa misskilning og úlfúð

Lögð voru fram þrjú bréf frá Velferðarráðuneyti á fundi bæjarstjórnar Garðs nú í vikunni sem svör við erindum til heilbrigðisráðherra varðandi málefni Dvalarheimila aldraðra Suðurnesjum og Garðvangs.

Í svörum Velferðarráðuneytisins kemur m.a. fram að ráðuneytið geri ekki athugasemd við niðurstöðu meirihluta stjórnar DS um að starfsemin á Garðvangi verðu flutt til Nesvalla, í andstöðu við fulltrúa Garðs og Sandgerðisbæjar. Þessi afstaða ráðuneytisins er þrátt fyrir að heilbrigðisráðherra og fulltrúar ráðuneytisins hafi áður lagt áherslu á að þau sveitarfélög sem standa að DS komist að sameiginlegri niðurstöðu.

Þá kemur fram að endurbætur á Garðvangi séu ekki inni í framkvæmdaáætlun ráðuneytisins um uppbyggingu hjúkrunarrýma í landinu. Í endurskoðun framkvæmdaáætlunarinnar muni ráðuneytið hafa í huga hvort æskilegt sé að fjölga hjúkrunarrýmum á Suðurnesjum og þá með hvaða hætti.

Fram kemur að svokölluð leiguleið til fjármögnunar á byggingu hjúkrunarheimila sé fullnýtt og ekki sé möguleiki eins og staðan er í dag að byggja meira samkvæmt henni. Þá séu endurbætur með þessari leið til fjármögnunar ekki mögulegar þar sem hún miðist við nýbyggingar hjúkrunarheimila.

Ráðuneytið telur að orðalag og orðaval bókunar bæjarráðs Reykjanesbæjar frá 19. desember 2013 sé til þess fallið að skapa misskilning og jafnvel ónauðsynlega úlfúð og að það sé miður. Að öðru leyti hafi ráðuneytið ekki skýringar á orðalagi í bókun bæjarráðs Reykjanesbæjar, en þar er vísað til þess að bæjarráðið vísar í kröfur og ákvarðanir stjórnvalda og ráðuneytisins varðandi flutning á starfsemi Garðvangs til Nesvalla.

Vegna svars ráðuneytisins þá bókaði bæjarstjórn Garðs eftirfarandi og samþykkti samhljóða:

„Bæjarstjórn Garðs harmar svör Velferðarráðuneytisins, sem eru í megin atriðum í mótsögn við það sem fram hefur komið á nokkrum fundum með fulltrúum ráðuneytisins, bókanir bæjarstjórnar Garðs um málið og tillögur sem bæjarstjórnir Garðs og Sandgerðisbæjar hafa lagt fyrir ráðherra.

Afstaða ráðuneytisins til samþykktar meirihluta stjórnar DS er í mótsögn við fyrri yfirlýsingar ráðuneytisins um að sveitarfélögin sem standa að DS komist að sameiginlegri niðurstöðu í málinu. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að fela lögmanni að leita leiða til þess að hnekkja ákvörðun meirihluta stjórnar DS um lokun Garðvangs á þeirri forsendu að stjórn DS hafi ekki valdheimildir til slíkra ákvarðana, með tilvísun í lögfræðiálit frá Forum lögmönnum frá því í ágúst 2013.

Bæjarstjórn bendir á að samþykkt meirihluta fulltrúa Reykjanesbæjar og Voga í stjórn DS, þess efnis að íbúar á Garðvangi verði fluttir til Nesvalla, megi líkja við hreppaflutninga fólks úr einu sveitarfélagi í annað.

Bæjarstjórnir Garðs og Sandgerðisbæjar lögðu tillögur fyrir ráðherra í ágúst 2013, um lausnir í málinu sem gerðu ráð fyrir starfsemi Garðvangs, Hlévangs, Nesvalla og Víðihlíðar. Þær lausnir miðuðu m.a. að því að fullnýta ónýttar heimildir hjúkrunarrýma á Suðurnesjum. Tillögurnar fólu einnig í sér lausnir um fjármögnun endurbóta á Garðvangi. Bæjarstjórn vekur athygli á því að viðbrögð ráðuneytisins við erindinu frá því í ágúst 2013 bárust ekki fyrr en í dag 15. janúar 2014, eða nærri fimm mánuðum síðar.

Bæjarstjórn hvetur heilbrigðisráðherra til þess að endurskoða þá afstöðu að hafa tillögurnar að engu, eins og fram kemur í svörum ráðuneytisins. Þá hvetur bæjarstjórn heilbrigðisráðherra til að beita sér fyrir því að hjúkrunarheimili í Garði fái stað í framkvæmdaáætlun ráðuneytisins um uppbyggingu hjúkrunarrýma.

Bæjarstjórn Garðs ítrekar hvatningu til heilbrigðisráðherra um að leggja sitt af mörkum til lausna til framtíðar litið, ekki síst þar sem hjúkrunarþjónusta við aldraða er á ábyrgð ríkisins. Með þeim hætti leggur ráðherra sitt af mörkum til þess að sátt og samstaða verði meðal íbúa Suðurnesja um nauðsynlega þjónustu við aldrað fólk á Suðurnesjum.

Bæjarstjórn Garðs felur bæjarstjóra að hefja undirbúning þess að Sveitarfélagið Garður sæki um framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra til endurbóta á Garðvangi eða til nýbyggingar hjúkrunarheimilis í Garði. Jafnframt er bæjarstjóra falið að hefja undirbúning þess að Sveitarfélagið Garður dragi sig út úr samstarfi sveitarfélaga innan DS“.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024