Bygg
Bygg

Fréttir

Orðaskak í bæjarstjórn: Ákvörðun forseta kærð til Félagsmálaráðuneytis
Mánudagur 24. nóvember 2008 kl. 12:16

Orðaskak í bæjarstjórn: Ákvörðun forseta kærð til Félagsmálaráðuneytis



Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi A-lista í Reykjanesbæ, hyggst leita til Félagsmálaráðuneytis vegna þeirra ákvörðunar Bjarkar Guðjónsdóttur, forseta bæjarstjórnar, að ávíta ekki Garðar Vilhjálmsson, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, vegna ummæla sem hann lagði Guðbrandi í munn á þar síðasta fundi bæjarstjórnar. Guðbrandur krafðist þess á síðasta bæjarstórnarfundi að þau yrðu dæmd dauð og ómerk. Garðar baðst afsökunar á ummælunum.

Snörp orðaskipti urðu milli Guðbrands og Garðars á þar síðasta bæjarstjórnarfundi vegna umræðu um Vallarheiði sem spannst af fyrirspurn Guðbrands um tekjur og útgjöld vegna svæðisins.
Guðbrandur segir Garðar hafa lagt sér orð í munn í umræðinni en Guðbrandur hafði bæði fengið upptöku og útskrift af fundinum til að staðfesta þetta. Á síðasta bæjarstjórnarfundi krafðist hann þess í bókun að forseti bæjarstjórnar, Björk Guðjóndóttir, dæmdi ummæli Garðars dauð og ómerk. Einnig kröfðust fulltrúar A-listans þess að Garðar yrði ávíttur eins og forseta bæjarstjónar bæri að gera samkvæmt 27. grein sveitarsjónarlaga.
Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, sá ekki ástæðu til að verða við þessum kröfum á grundvelli fyrirliggjandi fundargagna, þ.e. að þar kæmi ekki fram með óyggjandi hætti að brigsl hefðu verið borin á bæjarfulltrúa.
Guðbrandur er ósáttur við þau málalok og hyggst fara með málið áfram til Félagsmálaráðuneytis, samkvæmt því sem fram kom í máli hans á fundinum.

Á fundinum baðst Garðar afsökunar á umræddum ummælum, sem byggðust á misskilnini, þ.e. hann hefði ekki heyrt rétt það sem Guðbrandur sagði.

Bókun Guðbrands frá fundinum er svohljóðandi:

„Í umræðu vegna fyrirspurnar minnar um vallarsvæðið sem var á dagskrá á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 4. nóvember sl. steig bæjarfulltrúi Garðar Vilhjálmsson í ræðustól og lagði mér eftirfarandi orð í munn.

Tilvitnun.
"Þú sagðir nokkurn veginn orðrétt áðan ef ég má vitna í þín orð Guðbrandur? að við sitjum uppi með þetta fólk sem hefur flutt hingað á undanförnum árum. Þú tókst þannig til orða. Ég skrifaði það upp eftir þér vegna þess að þetta vakti sérstaka athygli mína"
Tilvitnun lýkur.

Undirritaður mótmælti því strax að þessi orð væru eftir honum höfð en ekki var hægt að ganga úr skugga um að svo hafi verið á fundinum. Ég óskaði eftir því við bæjarritara þann 5. nóvember sl. að fá útskrift á þeirri umræðu sem átti sér stað á fundinum undir þessum dagskrárlið og einnig að bæjarritari staðfesti hvort rétt hafi verið eftir mér haft.
Í símtali við bæjarritara þann 17. nóvember staðfestir hann að ég hafi ekki látið þessi orð falla á fundinum.

Vegna þessa og til þess að orðræða í bæjarstjórn geti farið fram með eðlilegum hætti í framtíðinni , fer ég þess hér með á leit við forseta að orð Garðars Vilhjálmssonar sem hann segir að séu eftir mér höfð verði dæmd dauð og ómerk og staðfesti að þau séu ekki eftir mér höfð.

Einnig tel ég rétt að forseti meti hvort ekki tilefni til að víta umræddan bæjarfulltrúa.

Óska ég eftir því að ákvörðun forseta verði bókuð í fundargerð.

Guðbrandur Einarsson
bæjarfulltrúi“

Bílakjarninn
Bílakjarninn