Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Opnunartími skemmtistaða um páskahátíðina 2012
Miðvikudagur 4. apríl 2012 kl. 14:49

Opnunartími skemmtistaða um páskahátíðina 2012


Opnunartími skemmtistaði um páskahátíðina er eftirfarandi, skv. tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum:

Miðvikudagur. 4. apríl Opið til kl. 03:00 eða 4.30 skv. leyfi

Fimmtudagur. 5. apríl
Skírdagur Opið til miðnættis

Föstudagur. 6. apríl Föstudagurinn langi Lokað en má opna á miðnætti og vera opið til kl. 03:00 eða 4.30 skv. leyfi

Laugardagur. 7. apríl Opið til kl. 03:00

Sunnudagur. 8. apríl Páskadagur Lokað en má opna á miðnætti og vera opið til kl. 03:00 eða 4.30 skv. leyfi.

Mánudagur. 9. apríl
Annar í páskum Opið til kl. 01:00 eða skv. leyfi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


1. Skemmtanir, svo sem dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða á öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að eru bannaðar á neðangreindum tíma um bænadaga og páska. Hið sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur spil fara fram.
Föstudaginn langa: Frá kl. 24 á skírdag til kl. 24 föstudaginn langa.
Páskadag: Frá kl. 03 til kl. 24.
Í 5. gr. laga nr. 32, 1997 um helgidagafrið er kveðið á um starfsemi sem undanþegin er því banni sem að ofan greinir. Meðal þess sem undanþegið er á föstudaginn langa og páskadag má nefna listsýningar, tónleika, leiksýningar og kvikmyndasýningar eða sams konar sýningar. Þó má starfsemin eigi hefjast fyrr en kl. 15.00.


2. Ofangreinda daga er heimilt að hafa gisti- og veitingastaði opna allan sólarhringinn. Áfengisveitingastaðir eru þó háðir tímamörkum í leyfum borgarstjórnar/bæjarstjórna. Skal stöðunum lokað þegar leyfðum veitingatíma áfengis lýkur og allir gestir farnir innan klukkustundar. Heimilt er að opna staðina að nýju tveimur klukkustundum eftir að áfengisveitingum átti að ljúka. Veitingar áfengis mega samt ekki hefjast aftur fyrr en reglur sveitarstjórna kveða á um.
Lögreglan gerir ekki athugasemdir við lágværa tónlist eða flutning sjónvarpsefnis á veitingastöðum þessa daga enda sé guðsþjónusta, kirkjuathöfn eða annað helgihald ekki truflað.