Opnunartímar Dag- og endurhæfingardeildar um jól og áramót
Fimmtudaginn 23. desember mun Dag- og endurhæfingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vera opin til kl. 16:00 en föstudaginn 24. desember verður lokað.
Fimmtudaginn 30. desember er deildin opin til kl. 16:00 en verður lokuð föstudaginn 31. desember. Áætlað er að loka 5 daga deildinni (Endurhæfingardeildinni) á tímabilinu 10.-25. janúar 2005. Á þeim tíma fer fram árlegt átak í krabbameinsleit kvenna á Suðurnesjum.
Af vefsíðu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja