Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Opinn málfundur allra framboða í Hljómahöll
Þriðjudagur 22. maí 2018 kl. 09:34

Opinn málfundur allra framboða í Hljómahöll

Málfundafélagið Faxi í samstarfi við Víkurfréttir og Reykjanesbæ efnir til opins málfundar með öllum framboðum í Reykjanesbæ í Hljómahöll n.k. miðvikudag 23. maí klukkan 20:00.

Þetta er í fyrsta sinn sem málfundafélagið Faxi gengst fyrir opnum framboðsfundi og hafa oddvitar allra framboða boðað komu sína á fundinn.  Faxafélagar annast skipulag og umsjón með fundinum og verður bryddað upp á nýjungum í annars hefðbundu fundafyrirkomulagi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Oddvitar framboðanna í Reykjanesbæ sátu saman fyrir svörum hjá RUV fyrir skömmu, en í Hljómahöll gefst bæjarbúum kostur á að sjá frambjóðendur segja frá stefnu framboða sinna og heyra þá rökræða hver við annan.

Víkurfréttir munu streyma fundinum beint á netið en áætlað er að fundinum ljúki klukkan 22:00