Opinn fundur SA um stöðu atvinnulífsins á Hótel Keflavík í kvöld
Samtök atvinnulífsins hafa boðað til opins fundar í Reykjanesbæ í kvöld um stöðu atvinnulífsins. Fundurinn verður á Hótel Keflavík og hefst kl. 20.
„Í núverandi ástandi verður að bregðast rétt við þegar í stað, lágmarka skaðann og auðvelda nýja uppbyggingu. Grípa verður til nauðsynlegra ráðstafana og taka ákvarðanir sem skapa grunn að nýrri framfarasókn,“ segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, kynnir nýja atvinnustefnu SA auk þess að ræða tillögur sem SA hefur sett fram í aðdraganda viðræðna vegna framlengingar kjarasamninga fyrir 15. febrúar næstkomandi. Fundarstjóri er Þorsteinn Erlingsson.
Mynd: af vef Samtaka atvinnulífsins.