Fréttir

Opinn fundur með bæjarstjóra Reykjanesbæjar í kvöld
Miðvikudagur 28. janúar 2015 kl. 09:22

Opinn fundur með bæjarstjóra Reykjanesbæjar í kvöld

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, hefur boðað til opins fundar og kynningar á fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2015-2018. Fundurinn verður í Bergi, Hljómahöll, í kvöld, kl. 20:00.

Á fundinum verður farið yfir það helsta sem gerst hefur frá því að íbúafundur var haldinn í Stapa þann 29. október sl. Farið verður yfir lykiltölur og verkefni í fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2015-2018 og samkomulag við innanríkisráðherra kynnt. Auk þess gefst fundarmönnum tækifæri til að spyrja og ræða málin.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024