Atnorth
Atnorth

Fréttir

Opið inn á gossvæðið frá Suðurstrandarvegi en ekki frá öðrum vegum eða vegaslóðum
Þriðjudagur 18. júlí 2023 kl. 10:10

Opið inn á gossvæðið frá Suðurstrandarvegi en ekki frá öðrum vegum eða vegaslóðum

Fréttatilkynning frá lögreglunni á Suðurnesjum - þriðjudaginn 18. júlí 2023, kl. 9.50

Í dag er opið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi en ekki frá öðrum vegum eða vegaslóðum.  Slökkvistarf heldur áfram.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið. Ganga þarf um 20 km leið fram og til baka. Gönguferðin hentar því alls ekki öllum. Gangan fram og til baka tekur um 5 til 7 klukkustundir. Aðrar gönguleiðir samkvæmt korti eru jafnframt opnar.

Björgunarsveitir komu nokkrum einstaklingum til aðstoðar í gær og í nótt. Engin alvarleg tilfelli. Sjúkrabíll er á svæðinu.

Sem fyrr þá gengur ekki í öllum tilfellum vel að biðja fólk um að halda sig utan hættusvæðis. Við biðjum því fólk um að haga sér í samræmi við fyrirmæli lögreglu og björgunarsveita og fara ekki inn á merkt hættusvæði/bannsvæði.  

Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar. Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.

Mælt er með því að fólk noti rykgrímur til að forðast mengun frá gróðureldum. Fólk fer að gosstöðvunum á eigin ábyrgð. 

Göngumenn klæði sig eftir veðri, taki með sér nesti og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu. 

Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar. 

Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir. Fylgist með vindátt og fréttaflutningi. 

Sjá jafnframt upplýsingar á https://safetravel.is/  https://www.almannavarnir.is/ https://www.vedur.is/  https://www.visitreykjanes.is/en  Fjölmiðlar veki sérstaklega athygli á þessum heimasíðum.

Akstur utan vega er bannaður.

Ferðamenn fari að fyrirmælum viðbragðsaðila.  Fjallið Keilir er inn á merktu hættusvæði.  

Spá veðurvaktar um gasdreifingu í dag:

Norðan og norðvestan 5-8 m/s, en bætir heldur í vind eftir hádegi. Lægir í kvöld. Gasmengunin berst til suðurs og má því búast við að hennar verði vart á Suðurstrandarvegi og á gönguleiðum að gosstöðvunum.
Spá gerð: 18.07.2023 04:26. Gildir til: 18.07.2023 23:59.