Fréttir

Opið hús í Tjarnarseli
Fimmtudagur 21. september 2017 kl. 13:07

Opið hús í Tjarnarseli

- málþing í Hljómahöll

Þann 22. september n.k. mun fræðslusvið Reykjanesbæjar og leikskólinn Tjarnarsel standa fyrir málþingi í Hljómahöll. Umfjöllunarefnið er orðaforði og tengsl hans við leik og nám ungra barna. Málþingið er haldið í tilefni af hálfra aldar afmæli Tjarnarsels, sem er elsti leikskóli Reykjanesbæjar.

Boðið verður upp á fjölda fyrirlestra og erinda í málstofum og að sögn Ingibjargar Bryndísar Hilmarsdóttur, leikskólafulltrúa sem setið hefur í undirbúningsnefnd málþingsins hefur áhugi á málþinginu farið fram úr björtustu vonum. Alls 340 þátttakendur hvaðanæva af landinu hafa skráð sig til þátttöku í málþinginu. Með Ingibjörgu Bryndísi í undirbúningsnefnd voru Árdís Hrönn Jónsdóttir leikskólastjóri Tjarnarsels og Inga María Ingvarsdóttir fyrrverandi leikskólastjóri Tjarnarsels. „Við erum auðvitað afskaplega ánægðar með að finna þennan áhuga og stoltar af því að geta boðið upp á 10 fyrirlestra og erindi sem öll eru flutt af fagfólki sem býr og starfar hér á svæðinu. Þá á aðalfyrirlesarinn ættir sínar að rekja til Keflavíkur.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þess má geta að að málþingi loknu verður opið hús í leikskólanum Tjarnarseli milli kl.13:00-14:30. Þátttakendum er boðið að koma og skoða leikskólann og ævintýralegan garð, sem er eitt af námssvæðum barnanna sem dvelja í leikskólanum.

Nánari upplýsingar og dagskrá má finna inn á heimasíðu Reykjanesbæjar.