Opið hús fyrir 60+ sem eiga eftir að fá bólusetningu
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun bjóða upp á „opið hús“ í bólusetningarhúsnæðinu á Ásbrú milli kl. 12 og 13 næstkomandi föstudag, 7. maí, þar sem einstaklingum 60 ára og eldri (fæddir 1961 og fyrr) sem ekki hafa fengið bólusetningu, býðst bólusetning með AstraZeneca, á meðan birgðir leyfa.
Ekki þarf að bóka tíma fyrirfram. Nóg er að mæta á staðinn og sýna skilríki.