Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Opið að gosstöðvunum í dag
Slökkvistarf hefur gengið vel og heldur áfram. Mynd/Jón Þorkell Jónasson
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 20. júlí 2023 kl. 09:52

Opið að gosstöðvunum í dag

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur gefið út að opið sé í dag inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi. Slökkvistarf hefur gengið vel og heldur áfram.

Starf eftirlitsaðila gekk vel í gær og í nótt og engin alvarleg tilfelli skráð. Sumir þreyttir og þurftu aðstoð við að koma sér til baka.

Eitthvað gengur erfiðlega að fá fólk til að fara eftir fyrirmælum því segir lögreglustjóri: „Sem fyrr þá gengur ekki í öllum tilfellum vel að biðja fólk um að halda sig utan hættusvæðis. Við biðjum því fólk um að haga sér í samræmi við fyrirmæli lögreglu og björgunarsveita og fara ekki inn á merkt hættusvæði/bannsvæði.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið. Ganga þarf um 20 km leið fram og til baka. Gönguferðin hentar því alls ekki öllum. Gangan fram og til baka tekur um fimm til sjö klukkustundir. Aðrar gönguleiðir samkvæmt korti eru jafnframt opnar.

Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar. Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.

Mælt er með því að fólk noti rykgrímur til að forðast mengun frá gróðureldum. Fólk fer að gosstöðvunum á eigin ábyrgð. Þá er lögð áhersla á að ekki sé farið með börn á svæðið og að fólk með hjarta- eða lungnasjúkdóma gangi ekki að gosinu, eða þungaðar konur. Það er vegna hugsanlegrar gasmengunar en einnig vegna reyksins frá gróðureldum. Þá er gangan löng og reynist sumum erfið.

Göngumenn klæði sig eftir veðri, taki með sér nesti og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.

Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar.

Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir. Fylgist með vindátt og fréttaflutningi.

Sjá jafnframt upplýsingar á https://safetravel.is/ https://www.almannavarnir.is/ https://www.vedur.is/ https://www.visitreykjanes. is/en https://loftgaedi.is/ loftgaedi.is.

Akstur utan vega er bannaður.

Ferðamenn fari að fyrirmælum viðbragðsaðila. Fjallið Keilir er inn á merktu hættusvæði.

Spá veðurvaktar um gasdreifingu:

Hægviðri í dag og því gæti gasmengun safnast fyrir á gosstað. Hæg suðaustlæg átt í nótt en 3-8 m/s á morgun og gasmengun berst því til norðvesturs.
Spá gerð: 20.07.2023 08:53. Gildir til: 21.07.2023 23:59.