Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Óöruggt flutningskerfi raforku á Suðurnesjum
Miðvikudagur 20. desember 2017 kl. 09:37

Óöruggt flutningskerfi raforku á Suðurnesjum

Í kjölfar bilunar í flutningskerfi Landsnets sunnudagskvöldið 5. nóvember 2017, sem olli víðtæku rafmagnsleysi á Suðurnesjum, ítrekar bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs eftirfarandi bókun sem gerð var á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2016, en þar var skorað á ráðherra að beita sér fyrir auknu öryggi í raforkumálum á Suðurnesjum:
 
„Mikilvægt er að Suðurnesjalína 2 verði reist sem fyrst. Flutningsgeta núverandi línu er fullnýtt og hamlar núverandi kerfi uppbyggingu á svæðinu. Suðurnesjalína 1 er eina tenging Reykjanesskagans við meginflutningskerfi Landsnets og hafa bilanir á henni valdið straumleysi. Það er ekki ásættanlegt m.a. með tilliti til þess að eini alþjóðaflugvöllur landsins er staðsettur á Suðurnesjum. Mikið álag veldur enn frekari hættu á truflunum á raforkuflutningum, sem og getur valdið tjóni hjá notendum. Það er brýnt hagsmunamál íbúa og atvinnulífs á Reykjanesi að flutningskerfi raforku verði styrkt sem fyrst.“
 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024