Mánudagur 19. ágúst 2002 kl. 18:03
Önd og þrír garðálfar rata ekki heim! - Álfamálið upplýst

Myndarleg hvít önd og þrír garðálfar rata ekki til síns heima eftir atburði helgarinnar. Garðálfar fóru þá á flakk í Reykjanesbæ - hurfu úr fjölmörgum görðum en birtust í einum garði við Birkiteig í Keflavík. Lögreglan í Keflavík hefur upplýst málið í náinni samvinnu við bæjarbúa sem sáu til ferða álfanna snemma á sunnudagsmorgun.Fjórir piltar sem komu til Keflavíkur eftir að hafa skemmt sér á menningarnótt í Reykjavík hafa viðurkennt að hafa staðið fyrir hvarfi á álfum úr fjölmörgum görðum í Keflavík og Njarðvík. Að sögn Skúla Jónssonar varðstjóra hjá lögreglunni í Keflavík fundu piltarnir hjá sér þörf fyrir að skreyta garðinn heima hjá einum kunningja þeirra við Birkiteig í Keflavík. Það voru hins vegar bæjarbúar sem voru snemma á fótum síðasta sunnudagsmorgun sem sáu til piltanna þar sem þeir voru að læðupúkast með stóð af garðálfum í eftirdragi.
Að sögn Skúla hjá lögreglunni tókst að hafa uppi á piltum og þeir fóru í fylgd lögreglunnar á rúntinn um Reykjanesbæ í þeim tilgangi að koma garðálfunum til síns heima. Það tókst að mestu en lögreglan hefur nú í fórum sínum myndarlega hvíta önd og tvo heila garðálfa, auk þess þriðja sem er brotinn. Þessir "garðbúar" rata ekki heim og vonandi að meðfylgjandi mynd hjálpi fólki að þekkja sína gripi. Einhverjir álfar urðu fyrir skemmdum í ævintýrum helgarinnar og hafa piltarnir lofað að bæta eigendum tjónið.