Ömmur í ránsferð
Tvær konur á fertugs og fimmtugsaldri voru handteknar í versluninni Kóda í Keflavík sl. fimmtudag, grunaðar um þjófnað.Konurnar voru færðar á lögreglustöðina í Keflavík og yfirheyrðar. Þær eru einnig grunaðar um að hafa stolið úr fleiri verslunum, á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Við húsleit í hótelherbergi þeirra í Keflavík fannst ýmis varningur sem talinn er tengjast málinu. Lögreglan í Keflavík rannsakar málið.