Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

Ómar Jóhannsson látinn
Fimmtudagur 11. mars 2004 kl. 08:44

Ómar Jóhannsson látinn

Ómar Jóhannsson revíuhöfundur og sagnamaður af Suðurnesjum lést á heimili sínu á Seltjarnarnesi í gær. Ómar barðist við illskeytt krabbamein síðustu mánuði sem að lokum lagði hann að velli. Í áhrifamiklu viðtali við Ómar sem birtist í Víkurfréttum þann 12. febrúar sl. lýsti Ómar baráttunni við krabbameinið og gerði upp lífshlaup sitt á opinskáan hátt. Um kvöldið voru haldnir styrktartónleikar til heiðurs Ómari, en þar mættu vel á fimmta hundrað manns til að styðja og heiðra þennan vel kunna Suðurnesjamann.
Eftirlifandi eiginkona Ómars er Guðný Reynisdóttir. Ómar lætur eftir sig eina dóttur og tvö fósturbörn.
Ómar Jóhannsson var fæddur 31. desember 1951 á Seyðisfirði. Hann var því 52 ára þegar hann lést.

Myndin: Ómar á heimili sínu í byrjun febrúar. VF-ljósmynd/JKK.

Bílakjarninn
Bílakjarninn