Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Fréttir

Ölvunaraksturinn kostaði 130.000 krónur
Föstudagur 5. nóvember 2004 kl. 15:31

Ölvunaraksturinn kostaði 130.000 krónur

Maður á fertugsaldri var dæmdur til þess að greiða 130.000 króna sekt í ríkissjóð eftir að hafa ekið undir áhrifum áfengis frá Sandgerði til Keflavíkur í sumar.

Við rannsókn reyndist alkahólmagn í blóði mannsins vera 2,15 prómill. Af þeim sökum var maðurinn sviptur ökuréttindum í eitt ár og greiði hann ekki sektina innan fjögurra vikna bíður hans 24 daga fangelsisvist í staðinn.

Manninum var gert að greiða allan sakarkostnað og þar með talin 70.000 króna málsvarnarlaun verjanda síns.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25