Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Fréttir

Ölvuð og steinsofandi undir stýri í Kúagerði
Reykjanesbraut í Kúagerði.
Mánudagur 10. apríl 2017 kl. 11:12

Ölvuð og steinsofandi undir stýri í Kúagerði

Lögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af ökumanni sem sat steinsofandi undir stýri. Bifreiðin var í gangi og hafði hann lagt henni úti í kant við Kúagerði. Í viðræðum við ökumanninn, sem er erlend kona, vaknaði grunur um að hún væri undir áhrifum áfengis. Hún var færð á lögreglustöð þar sem hún viðurkenndi að hafa neytt áfengis.
 
Þá hafa fáeinir ökumenn verið staðnir að of hröðum akstri á undanförnum dögum, einn til viðbótar var grunaður um ölvun og tveir um neyslu fíkniefna. Annar hinna síðarnefndu reyndist aldrei hafa öðlast ökuréttindi.
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25