Ölvaður ökumaður ók á kyrrstæðan bíl
Bíll gjöreyðilagðist á laugardagskvöld eftir að honum hafði verið ekið á mannlausan og kyrrstæðan bíl í Keflavík. Ökumaðurinn var grunaður um ölvun við akstur og var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Dráttarbíll fjarlægði bílana af vettvangi.
Annar ökumaður í Njarðvík missti vald á bifreið sinni í beygju með þeim afleiðingum að hún hafnaði á húsvegg. Þá lentu þrír bílar, sem öllum var ekið í átt til Grindavíkur, í árekstri. Ökumaður sem ók eftir Reykjanesbraut missti vald á bíl sínum með þeim afleiðingum að hann lenti utan í vegriði. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum.