Ölvaður og ók á grindverk við Norðurvelli
Eitt umferðaróhapp varð á næturvaktinni. Var bifreið ekið á grindverk við Norðurvelli og er ökumaður hennar grunaður um ölvun við akstur.
Einn ökumaður var kærður fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut. Mældur hraði var 116 km þar sem hámarkshraði er 90 km. Einn ökumaður var kærður fyrir að vera ekki með öryggisbeltið spennt við aksturinn.
Vf-mynd úr safni