Ölvaður og með óspektir á veitingastað
Maður gistir nú fangageymslur lögreglunnar í Keflavík eftir að hann var handtekinn eftir óspektir á veitingastað í Keflavík. Maðurinn mun hafa verið mjög ölvaður og til vandræða á veitingastaðnum og því var lögregla kölluð til.Maðurinn sefur nú úr sér vímuna og bíður timburmanna, sem eru væntanlegir með morgninum.