Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ölvaður keyrði öfugu megin inn á hringtorg
Þriðjudagur 10. október 2017 kl. 06:00

Ölvaður keyrði öfugu megin inn á hringtorg

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina var grunaður um ölvun við akstur og að vera jafnframt undir áhrifum fíkniefna. Hann ók öfugu megin inn á hringtorg og eftir það langt yfir gildandi hámarkshraða sem er 50 km á klukkustund.

Annar ökumaður reyndist aldrei hafa öðlast ökuréttindi og var þetta í annað sinn sem lögregla hafði afskipti af honum undir stýri.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og einir þrír höfðu neytt áfengis. Þeir voru þó allir undir mörkum og akstur þeirra því stöðvaður.