Ölvaður í árekstri með barn í bílnum
Árekstur varð í Keflavík á föstudagskvöld þegar bifreið var ekið aftan á aðra, sem beið á rauðu ljósi. Þegar lögreglan á Suðurnesjum ræddi við ökumenn á vettvangi reyndist vera mikil áfengislykt af þeim ökumannanna sem ekið hafði aftan á. Hann var því færður á lögreglustöð.
Í bílnum með honum var barn hans sem hann hafði verið að sækja og kvaðst hann hafa verið á heimleið þegar óhappið varð. Manninum var gerð grein fyrir því að barnaverndarnefnd yrði tilkynnt um málið.